Stílráðgjöf fyrir karla

Fullur fataskápur.
Ekkert til að fara í.

Ég hjálpa körlum að eyða minni tíma í að velja föt og meiri tíma í það sem skiptir máli.

Minni tíska. Meira sjálfstraust. Meiri einföldun.
Kannast þú við þetta?

Vandamálið er sjaldan að þig vanti fleiri föt.

Það er líklega eitt eða fleiri af þessu sem þú þekkir alltof vel.

01

Fullur skápur, ekkert til að fara í

Þú stendur fyrir framan fataskápinn á morgnana og veist ekki alveg hvað á að fara í.

02

Sömu flíkurnar aftur og aftur

Þú átt fullt af fötum en notar í raun alltaf sömu flíkurnar.

03

Peningar í föt sem þú notar ekki

Þú kaupir stundum eitthvað sem virkar í búðinni en endar ósnert aftast í skápnum.

04

Vilt líta betur út — án umstangs

Þú hefur lítinn áhuga á tísku og nennir ekki að eyða tíma í að hugsa um föt.

05

Peningar inn — engin framför

Þú eyðir peningum í föt en fataskápurinn verður ekkert betri.

Lausnin

Þú þarft líklega ekki fleiri föt.

Vandamálið er yfirleitt að fataskápurinn hefur safnast saman í gegnum árin án skýrrar stefnu — fullur skápur af fötum sem passa illa saman. Ég hjálpa þér að einfalda hlutina, nýta betur það sem þú átt og byggja upp fataskáp sem virkar í daglegu lífi.

Niðurstaðan? Einfaldari morgnar. Betri yfirsýn. Minni fyrirhöfn.
Alexander Sindrason
Um mig

Ég heiti Alexander Sindrason.

Í gegnum árin hef ég hjálpað bæði þjóðþekktum einstaklingum og körlum úr ólíkum áttum að byggja upp fataskáp sem hentar þeirra lífi.

Ég vinn ekki út frá tískustraumum eða flóknum reglum.

Ég hjálpa þér einfaldlega að finna út hvað virkar fyrir þig.

Markmiðið mitt er einfalt
Að þú getir opnað fataskápinn á morgnana og vitað nákvæmlega hvað þú ætlar að fara í.
Þjónusta

Lausnir fyrir menn sem vilja einfaldari fataskáp

Veldu það sem hentar — eða byrjaðu á ókeypis samtali og við finnum réttu leiðina saman.

01 · Fataskápsgreining

Fullur fataskápur. Ekkert til að fara í.

Við förum yfir það sem þú átt nú þegar og finnum út hvað virkar, hvað virkar ekki og hvað vantar.

  • Yfirferð á fataskápnum
  • Tillögur að samsetningum
  • Listi yfir það sem vantar
  • Skýr áætlun fyrir framtíðarkaup
30.000 kr.
02 · Verslunarferð

Hatarðu að versla?

Ég sé um að stytta leiðina að réttum flíkum. Engin tilgangslaus kaup, enginn tími til spillis — bara fatnaður sem passar þér og lífsstílnum þínum.

  • 3–4 klukkustundir
  • Markviss verslun
  • Persónulegar ráðleggingar
  • Flíkur sem virka saman
45.000 kr.
03 · Eitt tilefni

Mikilvægur dagur framundan?

Brúðkaup. Stefnumót. Atvinnuviðtal. Fundur. Við finnum rétta settið svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú átt að fara í.

  • Eitt heildstætt outfit
  • Aðlagað að tilefni og líkamsbyggingu
  • Tilbúið fyrir daginn
25.000 kr.
04 · Allt í gegn · Heildarlausn

Hættu að giska

Heildarlausnin fyrir þá sem vilja taka fataskápinn í gegn í eitt skipti fyrir öll. Við byrjum á því sem þú átt, finnum það sem vantar og byggjum upp fataskáp sem gerir morgnana einfaldari.

  • Fataskápsgreining
  • Verslunarferð
  • 3–5 tilbúnar samsetningar fyrir vinnu, frítíma og sérstök tilefni
  • Eftirfylgni í 30 daga
100.000 kr.
Ferlið

Hvernig þetta virkar

Einfalt, hagnýtt og án skuldbindingar. Fjögur skref frá óvissu yfir í skýrleika.

01

Við spjöllum saman

Þú sendir mér skilaboð og við tökum stutt, ókeypis kynningarsamtal.

02

Við finnum réttu lausnina

Við skoðum hvað hentar þér, markmiðum þínum og fjárhagsáætlun.

03

Við tökum til í hlutunum

Hvort sem það er í fataskápnum þínum eða í verslunarferð vinnum við þetta saman á einfaldan og hagnýtan hátt.

04

Þú veist hvað virkar

Þú ferð heim með einfaldari fataskáp, betri yfirsýn og minni fyrirhöfn á hverjum morgni.

Næsta skref

Tilbúinn að fá fataskáp sem virkar?

Sendu mér skilaboð og við byrjum á einföldu spjalli — án skuldbindingar.

Hefja samtal